VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í ágúst 2018

Samsett hlutfall í ágúst var 81,8% en það var 94,8% á sama tíma í fyrra. Samsett hlutfall það sem af er ári er 97,8% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 97,6%.

Nafnhækkun fjárfestingaeigna var 0,4% í ágúst en nafnhækkun frá áramótum er 5,3%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæplega 1,1 milljarð króna í tjónabætur í ágúst og hefur greitt viðskiptavinum rúma 10 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum 
**Hafa ber í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.